Mikill afli berst á land

Sl. mánudag kom Klakkur SK-5 inn til löndunar með um 125 tonn.  Af þeim afla voru um 115 tonn þorskur tæp 6 tonn lifur og restin ýmsar tegundir. Á miðvikudag landaði Örvar SK-2 tæplega 9000 kössum af frosnum afurðum. Af því eru 6145 kassar grálúða, u.þ.b. 160 tonn.  Af karfa eru 1644 kassar eða tæp 35 tonn, 687 kassar af gulllaxi eða tæp 18 tonn og 319 kassar af blálöngu sem gerir 8 tonn. Einnig er um 14 tonn af þorski.

Þetta kemur fram á heimasíðu Skagafjarðahafna en þar segir líka að í síðustu viku hafi Klakkur komið inn eftir brælutúr með einungis 27 tonn af þorski og smávellu af öðrum tegundum.  Einnig kom Röst SK-17 inn vegna brælu með um 1100 kíló af rækju.

Hafborg SK-54 er búinn að fara fimm róðra í mánuðinum og landa samtals 3,1 tonni. Á miðvikudagsmorgun lönduðu Vinur SK-22 og Már SK-90 sitt hvorum 700 kílóunum.

Á Hofsósi hafa menn einnig verið að nudda upp fiski.  Ásmundur SK-123 hefur landað tvisvar samtals 4,9 tonnum og Þorgrímur SK-27 samtals 4,3 tonnum í tveim löndunum.  Þrír Siglufjarðarbátar, þeir Jonni SI-86, Mávur SI-96 og Oddur á Nesi SI-76 komu inn á fjörðinn til að veiða vegna brælu úti fyrir og lönduðu samtals 39 tonnum, hver bátur með tvær landanir.  Þá er Bíldsey SH-65 komin aftur og landaði um 5 tonnum á þriðjudag, segir á hafnir.skagafjordur.is.

Fleiri fréttir