Miklar skemmdir á Þverárfjallsvegi
Vegagerðin hefur varað við skemmdum á klæðningu (slitlagi) á Þverárfjallsvegi undanfarna daga en hluti vegarins er stórskemmdur og burðarlagið í honum að brotna niður. Samkvæmt heimildum Rúv.is var rangt efni var notað í veginn þegar hann var lagður fyrir áratug, auk þess sem ekki hafa fengist fjármunir í eðlilegt viðhald.
Um er að ræða 15 kílómetra kafla sem er mjög illa farinn en sá kafli var tekinn í notkun fyrir aðeins tíu árum. Efsta burðarlagið í veginum er gefa sig og molnar smám saman niður undan umferð og tíðarfari. Áætlaður kostnaður á viðgerð er á bilinu 20 til 25 milljónir króna á kílómeter og þýðir það að viðgerð á 15 kílómetrum gæti kostað allt að 375 milljónum króna.
Að sögn Rúnars Péturssonar, yfirverkstjóra Vegagerðarinnar á Sauðárkróki, væri vegurinn ekki orðinn svona illa farinn ef fengist hefðu fjármunir í eðlilegt viðhald þó svo að rangt efni hafi verið notað í efsta burðarlag vegarins á sínum tíma. Hann tekur sem dæmi að nær aldrei hafi verið lögð ný klæðning yfir slitlagið frá því að vegurinn var lagður.
„Og ekki bara á þessum vegi, það er með flesta vegi sem við erum að fá í andlitið núna sem klæðningarnar eru að gefa sig, það er eingöngu út af fjárskorti í viðhald,“ sagði Pétur í samtali við Ríkisútvarpið.