Mögnuð stemning í Miðgarði er Skagfirðingar sungu fyrir Þjóðkórinn - Myndband
Það var sannkölluð söngstemning í Miðgarði þegar Halldór Gunnar Pálsson kórstjóri Fjallabræðra mætti á svæðið til að taka upp „rödd þjóðarinnar“ síðasta sunnudag. Þar er hann að safna röddum í lokakafla Þjóðlagsins sem eflaust mun hljóma á öldum ljósvakans í framtíðinni. Fjöldi fólks á öllum aldri kom til að ljá Þjóðkórnum rödd sína og ekki vantaði röddunina allt frá bassa að sópran.
Hér fyrir neðan er hægt að fylgjast með hvernig málin þróuðust í Miðgarði allt frá fyrstu prufu og þar til kórstjórinn stóð í lokin með gæsahúð, ánægður með árangur dagsins.
http://www.youtube.com/watch?v=iYaU2r4acmM