Molduxamótið annan jóladag
Hið árlega jólamót Molduxa verður að venju haldið þann 26. desember nk í íþróttahúsinu á Sauðárkróki og hefst með látum kl. 12:00. Keppt verður í 40+, opnum flokki, kvennaflokki og einnig geta einstaklingar skráð sig og verður þeim komið í sér lið ef nógu margir skrá sig. Gjald á hvert lið er kr. 15.000 og á stakan leikmann (í sérliði) er kr. 2500
Greiða skal gjaldið fyrir fyrsta leik. Upplýsingar og skráning hjá Palla Friðriks, s: 861 9842 eða á palli@feykir.is. Skráningu skal lokið á hádegi jóladags og mega lið sem skrá sig eftir þann tíma búast við að verða neitað um þátttöku.
Allur ágóði rennur óskiptur til Körfuknattleiksdeildar Tindastóls.
FeykirTV var á staðnum í fyrra og gerði mótinu skil, sjá HÉR