Morgunútvarp Rásar tvö á Króknum
Þeir Guðmundur Pálsson og Ægir Þór Eysteinsson hafa í morgun sent Morgunþátt Rásar 2 út frá hljóðstofu Ríkisútvarpsins á Sauðárkróki en Doddi litli fær að hamast í tökkum í Efstaleitinu í Reykjavík. Málefni Norðvesturkjördæmis eru í brennidepli og hafa gestir gengið inn og út úr hljóðstofu í morgun sem og rætt er við fólk í gegnum síma.
Málefni kjördæmisins hafa verið í brennidepli og má segja að atvinnu-, mennta- og heilbrigðismál séu það helsta sem brennur á Skagfirðingum. Útsending stendur til klukkan níu en hægt verður að nálgast efnið á hlaðvarpi RÚV ef einhver hefur misst af þættinum.