Munu verja lönd sín og hagsmuni komandi kynslóða
Um páskana var haldinn fjölmennur fundur um Blöndulínu 3 á Mælifellsá í Skagafirði þar sem landeigendur og aðrir hagsmunaaðilar hafna alfarið lagningu loftlínu frá Blöndustöð til Akureyrar en línan mun fyrst og fremst þjóna hagsmunum stóriðju að sögn fundarmanna.
Fram kom að fyrirhuguð 220 kV loftlína hefði í för með sér óásættanleg áhrif á ásýnd og ímynd landsins og skerði m.a. möguleika til landbúnaðar og ferðaþjónustu.
Fundurinn samþykkti eftirfarandi ályktun:
Fundur um Blöndulínu 3, haldinn á Mælifellsá í Skagafirði þann 6. apríl 2012, hafnar alfarið lagningu loftlínu frá Blöndustöð til Akureyrar með tilheyrandi háspennumöstrum.
Fyrirhuguð 220 kV loftlína hefur í för með sér óásættanleg áhrif á ásýnd og ímynd landsins og skerðir m.a. möguleika til landbúnaðar og ferðaþjónustu. Í stað 220 kV loftlínu, bendir fundurinn á lagningu 132 kV jarðstrengs, en flutningsgeta hans er rífleg til að sinna raforkuþörf almennings.
Fyrirhuguð Blöndulína 3 mun fyrst og fremst þjóna hagsmunum stóriðju. Sveitastjórnir Voga og Kjósarhrepps hafa þegar hafnað lagningu loftlína til stóriðju um land sveitarfélaganna. Sveitastjórnir sem bera ábyrgð á skipulagsmálum á leið Blöndulínu 3 eru hvattar til að taka hugrekki þeirra sér til fyrirmyndar og horfa til framtíðar hvað varðar metnaðarfullar lausnir við lagningu línunnar.
Landeigendur á Efribyggðarleið munu verja lönd sín og hagsmuni komandi kynslóða með öllum tiltækum ráðum.