Náðu fram því besta í hestinum þínum

Reiðkennaraefni Hólaskóla bjóða upp á reiðnámskeið á Hólum dagana 28. - 31. maí. Farið verður yfir þá þætti sem nýtast þátttakendum til að bæta hestinn sinn fyrir útreiðar, ferðir eða keppni. Áhersla verður lögð á gangtegundir, stjórnun og ásetu.

Námskeiðið hentar öllum 18 ára og eldri og nemendur verða að mæta með taminn hest og búnað. Ekkert námskeiðsgjald er tekið en möguleiki er á hesthúsplássi, gegn kr. 1.500 gjaldi á sólarhring. Kennslustaður er Brúnastaðir á Hólum í Hjaltadal og er kennt kl 17:00-22:00 alla dagana.

Skráning er á vefnum holar.is. Nánari upplýsingar gefa Karen Emilía í síma 865 4239 og Karen Líndal í síma 868 7606 á milli kl 18:00 - 22:00 á kvöldin.

Fleiri fréttir