Nafnlaus nostalgía!
Fröken Fabjúlöss er lengi búin að horfa á 120 lita pallettuna frá No Name og velta því fyrir sér hvort hún sé bara enn ein "Ebay pallettan", eða hvort þetta sé eitthvað sem er vert að skoða betur. Eftir að hafa skoðað, lesið og diskúterað við sjálfa sig ákvað Frökenin loksins að láta vaða á eitt stykki, og tók augnskuggaprimerinn frá No Name í leiðinni.
Fyrsta verk Fröken Fabjúlöss var að gera smá svona "swap" prufur á hendina á sér, bæði með og án primersins. Fröken Fabjúlöss er búin að vera að leita að góðum primer í svolítinn tíma þar sem farðanir og þá sérstaklega litríkar farðanir eru mun áhrifameiri með augnskuggaprimer, og lofar þessi mjög góðu! Sumir primer-ar eiga það til að "hrukkast" á augnlokinu sérstaklega ef húðin er frekar feit, en þessi virðist ekki gera það, og hlýnaði Fröken Fabjúlöss mikið um hjartarætur að sjá það!
Frökenin ætlaði nú bara að byrja á að gera prufur og láta þar við sitja í þetta skipti, en litirnir hreinlega örguðu á hana og útheimtu frekari notkun, og gat Fabjúlöss ekki hundsað þá beiðni. Litirnir eru alveg einstaklega skemmtilegir og þægilegir í notkun og mjög auðvelt að blanda þá, og fyrr en varði hafði litríkur regnbogi myndast á augnloki Fröken Fabjúlöss! Þar sem sköpunargleðin og litagleðin var í fyrirrúmi ákvað Frk. Fab að leika sér aðeins með Mixing Liquid sem hún fjárfesti nýlega í frá Make Up Store. Skrapaði hún smá af græna augnskugganum og blandaði saman við Mixing Liquid og fékk út fagurgrænann eyeliner sem hún bar á augnlínua og notaði svo afganginn sem "maskara" á neðri augnhárin.
Fröken Fabjúlöss er hæstánægð eftir þessa prufukeyrslu sína á 120 lita pallettunni frá No Name, og getur svo guðsvarið það að þetta er langt frá því að vera seinasta förðunin sem hún mun framkalla með þessari litapallettu!
Fröken Fabjúlöss er ekki feimin við að setja sinn gæðastimpil á 120 lita pallettuna frá No Name!! Útlitið á pallettunni er svipað og á "ebay" pallettunum alræmdu, en þar endar samanburðurinn þar sem augnskuggarnir frá No Name eru á allt öðru og hærra kaliberi þegar kemur að gæðum!