Námskeið í torfhleðslu- og grindasmíði fer fram í júlí
Námskeið í torfhleðslu- og grindasmíði verður haldið dagana 9.-12. júlí nk. á Tyrfingsstöðum í Skagafirði. „Torfið er ekki lengur notað sem byggingarefni. Það tilheyrir handverksmenningu sem aðeins lifir vegna þess að við höfum ákveðið að halda við nokkrum torfhúsum sem talin eru hafa menningarsögulegt gildi,“ segir á heimasíðu Fornverkaskólans.
Jafnframt segir að þegar vinna á torf er mikilvægt að þekkja torftökustaði, kunna að rista og stinga efnið og meðhöndla það samkvæmt fyrirhugaðri notkun.
Skráning fer fram hjá Bryndísi Zoëga í síma 8602926/4535097 eða á netfangið bryndisz@skagafjordur.is. Skráningarfrestur er til 21. júní 2013.