Nikkurnar þandar á Fjölskylduhátíð í Húnaveri
Félag harmonikuunnenda í Skagafirði F.H.S. var stofnað 21. febrúar árið 1992, það er því 20 ára um þessar mundir. Þess verður minnst á Fjölskylduhátíð harmonikuunnenda , sem verður haldin að venju í Húnaveri um Jónsmessuhelgina 22. – 24. júní nk. þetta verður í 15. skiptið sem þessi hátíð er haldin í Húnaveri.
Að sögn Gunnars Ágústssonar formanns F.H.S. hefur á liðnum 14 árum verið samstarf með H.U.H. (Húnvetningum) með hátíðina, en vegna breyttra aðstæðna hjá þeim stendur F.H.S. eitt að þessari hátíð nú. Hátíðin verður með svipuðum hætti og verið hefur. Dansleikur á föstudagskvöld með Geirmundi og Jóa, afmæliskemmtidagskrá og kaffiveitingar á laugardeginum og svo dansleikur á laugardagskvöld þar sem hljómsveitir félagsins leika fyrir dansi. Nú er rakið tilefni fyrir unnendur þessarar vinsælu tónlistar að hittast hress og kát að vanda, björtustu helgi sumarsins.
Þar sem þetta er 20 ára afmæli F.H.S. og í 15. skiptið sem hátíðin er haldin í Húnaveri þótti við hæfi að halda upp á tvöfalt afmælisár. Mun félagið því bjóða upp á kaffiveitingar í tilefni áfangans í Húnaveri á laugardeginum að lokinni skemmtun og hvetur Gunnar alla til að taka daginn frá og skreppa í kaffi og skemmtilega dagskrá. Aðgangseyrir yfir helgina er kr. 5.000,- frítt fyrir 12 ára og yngri en á dansleik fyrir aðra gesti kostar það kr. 2.000,-
Harmonikuleikararnir Jón og Stefán Miðhúsabræður, munu stilla saman strengina ásamt Guðmundi Ragnarssyni bassaleikara og Kristjáni Þ. Hansen trommuleikara. Þeir leika svo undir hjá söngvurunum Pétri og Sigfúsi Álftagerðisbræðrum en einnig leika þeir undir hjá söngkonunni Ingunni Kristjánsdóttur. Harmonikuleikarinn Einar Guðmundsson frá Akureyri kemur einnig við sögu á þessum afmælistónleikum.
Skemmtidagskráin hefst klukkan 13:30 og er aðgangseyrir kr. 1.500,- og verða kaffiveitingar á eftir í boði félagsins og að sjálfsögðu eru allir velkomnir.