Nokkrar svipmyndir úr Sparisjóðnum
Það hafa margir lagt leið sína í Sparisjóðinn í jólamánuðinum, segir í tilkynningu frá Sparisjóði Skagafjarðar en ýmislegt skemmtilegt var í boði þessa skammdegisdaga. Langur fimmtudagur lukkaðist vel og sá Sauðárkróksbakarí um að veita heitt súkkulaði ásamt því að bjóða gestum að gæða sér á jólakökum og laufabrauði. Þá var ungur viðskiptavinur sparisjóðsins fenginn til að draga út veglega vinninga í jólaleik Sparisjóðsins.
Ýmiss nöfn komu upp úr svarkassanum en spurt var hvaða íslenski jólasveinn kæmi til byggða þann 21. desember - rétt nafn var að sjálfsögðu Gluggagægir. Sparisjóðurinn óskar öllum vinningshöfum til hamingju og Feykir tekur heilshugar undir þá ósk.