Norðlingabók, tveggja binda stórvirki Hannesar Péturssonar, komin út
Bjartur hefur, í samvinnu við Opnu, gefið út Norðlingabók eftir skagfirska stórskáldið Hannes Pétursson en þar er að finna alla sagnaþætti skáldsins í tveimur bindum. Hannes er löngu landskunnur sem eitt helsta ljóðskáld þjóðarinnar og hefur stundum verið kallaður síðasta þjóðskáldið.
Á vef Bjarts segir: „Jafnhliða ljóðlistinni hefur Hannes samið fræðirit og greinar, ferðasögur og fengist við þýðingar. Ekki síst hefur Hannes lyft hinum þjóðlegu sagnaþáttum upp á nýtt listrænt stig. Úr heimildum og sögnum hefur hann glætt minnisverðar frásagnir nýju lífi með orðsnilld sinni og stílfimi.
Hannes hefur síðustu misserin endurskoðað alla sagnaþætti sína, yfirfarið þá og leiðrétt og fært ,,textann nær þeim stílsmekk, eða sérvizku, sem ég bý við núna þegar ég kveð til fulls þessi fræði“, eins og skáldið skrifar sjálft að bókarlokum.
Í Norðlingabók birtast þættir í endanlegri mynd skáldsins. Fyrra bindið geymir frásagnir sem áður birtust í þriggja binda safninu Misskipt er manna láni og í síðara bindinu má finna hið magnaða Rauðamyrkur og heimildaþætti og fróðleiksgreinar úr bókinni Frá Ketubjörgum til Klaustra og þar hefur Hannes bætt talsverðu við, sem ekki hefur áður birst á einum stað.
Arndís Lilja Guðmundsdóttir hannaði útlit bókarinnar en Eyjólfur Jónsson braut hana um.“
Þess má geta að í kjölfar setningarhátíðar Sæluviku Skagfirðinga í fyrra var haldin formleg vígsluathöfn Hannesarskjóls á Nöfunum ofan Sauðárkróks en skjólið var hlaðið til heiðurs Hannesi og er þar vísað til bókar hans, Jarðlag í tímanum, sem fjallar um uppvaxtarár Hannesar á Sauðárkróki og Skagafirði, en bókin hefst uppi á Nöfum og endar þar líka.
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.