Ný heimasíða bleikjukynbótaverkefnis

Í gær opnaði Jón Bjarnason landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra nýja heimasíðu bleikjukynbótaverkefnis Háskólans á Hólum í glæsilegri aðstöðu verkefnisins í gömlu fjárhúsunum á Hólum.

Bleikjukynbætur og tilheyrandi rannsóknir hafa verið stundaðar á Hólum síðan 1992 og hafa notið veglegs styrks landbúnaðarráðuneytisins, nú landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytisins. Kynbótaverkefnið hefur skipt sköpum fyrir þróun bleikjueldis á Íslandi sem nú er í örum vexti og markar því þessi athöfn nýjan áfanga í eflingu bleikjurannsókna og bleikjueldis á Íslandi.

Einar Svavarsson sem hefur haft umsjón með framkvæmd kynbótaverkefnisins segir hina nýju heimasíðu vera ætlaða til upplýsinga bæði fyrir þá sem stunda bleikjueldi í landinu sem og almenning sem vill fylgjast með þróun mála í eldi og rannsóknum á bleikju.

Hina nýju heimasíðu bleikjurannsókna er hægt að skoða HÉR.

Fleiri fréttir