Nýr Veitustjóri tekur tímabundið við
Páll Pálsson veitustjóri lætur af störfum sem Veitustjóri hjá Skagafjarðarveitum og viðræður standa yfir við Gunnar Björn Rögnvaldsson um að hann taki að sér að sinna starfi Veitustjóra tímabundið til eins árs. Þetta kom fram á 158. fundi Skagafjarðarveitna þann 10. júlí sl.
Næsta árið verður svo nýtt til að ákveða hvernig skipulagsmálum Skagafjarðarveitna verði háttað í næstu framtíð.