Ó svo Sleek!!!!
Oft var þörf en nú er nauðsyn til að gleðjast í glimmerhjartanu!!!!
Eitt er það förðunarmerki sem Fröken Fabjúlöss er einstaklega hrifin af: Sleek!
Frökenin hefur í eigu sinni 3 pallettur frá þessu merki úr svokallaðri i-Divine línu hjá þeim; Acid pallettuna, Bad Girl pallettuna og svo eina af Ultra Matte pallettunum. Sleek er eitt af þessum fáu förðunarmerkjum í heiminum sem sameina gæði og gott verð- Eitthvað sem að mati okkar hérna í nafla Fabjúlössmans má vera meira af!
Frökenin hefur oftar en ekki gripið til Sleek og þá sérstaklega Acid pallettunnar þegar hún vill slá um sig með neon litadýrð og má sjá lúkk hér fyrir neðan þar sem þessi palletta er í öndvegi!
En ástæðan fyrir þessari færslu og til þess að gleðjast er að nú er Sleek loksins komið í sölu á Íslandi!!!!! Elskan hún Heiðdís Austfjörð, fegurðarkúnstner og glimmerkollegi Frökenar Fabjúlöss hefur hlotið þá eftirsóttu nafnbót dreifingaraðili Sleek á Íslandi! Það sem meira og gleðilegra er, er að Heiðdís heldur sama hræbillega verðinu og Sleek gefur sig út fyrir og eru tildæmis I-Divine palletturnar seldar hjá henni á litlar og saklausar 2390.- krónur sem er osom af því hver palletta inniheldur 12 augnskugga! Hægt er að fá nánast allt sem Sleek hefur upp á að bjóða hjá Haustfjörð.is og er það nú ekki af skornum skammti! Varalitapalletturnar yndislegu, kinnalitapalletturnar, eyelinerarnir og fleira er í öndvegi! Einnig er Heiðdís að selja óhugnalega fallega skrautsteina til að fullkomna glamúrinn, enda er hún þekkt fyrir það stelpan að glitra og sparkla eins og enginn sé morgundagurinn!!
Frökenin mælir eindregið með því að allir leggi leið sína inn á Haustfjord.is þar sem Sleek er selt í skipsförmum, fjárfesta í einhverju snúlleríi og byrja að leika sér, Fröken Fabjúlöss kvittar nafn sitt hiklaust við þá fullyrðingu að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum!!! Það er líka gaman að segja frá því að ein af allra allra uppáhalds förðunardívunum okkar hérna í heimshorni Fabjúlössmans, hún Linda Hallberg, notar Sleek mjög mikið og það var akkúrat hún sem kynnti okkur fyrir Sleek til að byrja með og það segir nú nokkuð mikið um gæði vörunnar enda notar hún Linda ekkert drasl á andlitið á sér!