Ofboðslega smart OPI

Fröken Fabjúlöss náði að læsa krumlunum í tvö naglalökk úr nýjustu línunni hjá OPI- Germany Collection- ofsalega fallegir litir! Annar heitir "Deutsch you want me baby?" og er einhver skemmtileg blanda af rauðum og appelsínugulum hásanseruðum lit sem er ótrúlega lekker, og hinn liturinn heitir "My very first knockwurst" og er mattur ljós litur sem Fröken Fabjúlöss nær ekki alveg að nefna, en er óttalega lekker og flottur.

Í gærkvöldi var svo stokkið í það að prufa dásemdina og missti Frk Fab sig alveg í gleðinni!!! Það sem byrjaði á því að ætla að vera frekar venjuleg naglalökkun, endaði í frekar miklum skrautlegheitum þar sem enginn nögl er eins!

Þumallinn fékk að vera einfaldur, þar sem "My very first knockwurst" fékk að njóta sín. Vísifingurinn fékk svo að vera með sama lakk í grunninn en sköpunargleðin tók völdin og var nöglinni með blautu lakkinu dýft ofan í glimmerdós sem fannst í fórum Fröken Fabjúlöss (3D Gold frá MAC). Á löngutöng langaði Frk. Fab að prufa sig áfram með Ombre aðferðinni, eitthvað sem hana hefur langað að prufa lengi (þar sem einn litur er notaður í grunninn og annar svo dúmpaður á með svampi), en það kom ekki alveg nógu vel út þar sem þessi litasamsetning er greinilega ekki sú allra besta í það. Baugfingur fékk svo að vera með  "Deutsch you want me baby?" í forgrunn og fremsta partinum af nöglinni svo dýft ofan í glimmerið góða, og var útkoman einstaklega jólaleg og verður örugglega brúkuð í desember! Á litla fingri fékk svo  "Deutsch you want me baby?" að njóta sín til fulls!

Þetta er það sem gerist þegar Fröken Fabjúlöss er skilin eftir í smástund með eitthvað fallegt og skemmtilegt þar sem minnsti möguleiki er á því að láta sköpunargleðina njóta sín til fulls! OPI lökkin má nálgast í Lyfju, og mælir Fröken Fabjúlöss heilshugar með þeim. Bæði lökkin sem hún notaði þekja rosalega vel, og þurfti ekki nema 2 umferðir. Og það er nóg til þess að Fröken Fabjúlöss er ástfangin af þeim!

Fleiri fréttir