Ókeypis í Króksbíó á sunnudaginn

Íslensk kvikmyndahelgi verður haldin um helgina og af því tilefni mun Króksbíó sýna þrjár kvikmyndir eftir Friðrik Þór Friðriksson sunnudaginn 24. mars. Klukkan 15:00 verða Bíódagar sýndir, Englar alheimsins verða á tjaldinu kl. 17:00 og pönkbylgjunni verða gerð skil í Rokk í Reykjavík kl. 20:00. Aðgangur er ókeypis og nú er bara að demba sér í bíó.

Á bak við framtakið standa íslenskir kvikmyndagerðarmenn, í samstarfi við 18 sýningarstaði og Kvikmyndamiðstöð Íslands. Alls verða sýndar 34 myndir á 18 sýningarstöðum og ókeypis verður inn á allar sýningar.

Leikstjórar eða aðrir aðstandendur verða viðstaddir fjölda sýninga, t.a.m. verður Ragnar Bragason á Akranesi, Gunnar B. Guðmundsson (Gauragangur) á Ólafsvík, Gunnar Karlsson (Hetjur Valhallar - Þór) á Hvammstanga, Ari Kristinsson (Duggholufólkið) á Blönduósi, Kristín Andrea Þórðardóttir (Borgríki, framleiðandi) á Patreksfirði, Ásdís Thoroddsen (Ingaló) á Ísafirði, Óskar Jónasson (Hetjur Valhallar – Þór) á Ólafsfirði, Rúnar Rúnarsson (Eldfjall) á Raufarhöfn, Bragi Þór Hinriksson/Sverrir Þór Sverrisson „Sveppi“ á Seyðisfirði og Egilsstöðum, Marteinn Þórsson (Rokland) á Kirkjubæjarklaustri.

Á kvikmyndasýningum í Reykjavík verða leikstjórar/aðstandendur ákveðinna kvikmynda viðstaddir sýninga. Sýningarstaðir voru valdir í samráði við menningarfulltrúa hvers landshluta og eftir aðstöðu til sýninga.

Upplýsingar um allar myndirnar má nálgast á www.kvikmyndavefurinn.is

Fleiri fréttir