Ólíðandi að ráðast svona á grunnstoðir þjónustunnar í héraðinu

Verslunarmannafélag Skagafjarðar sendi í gær ályktun um þá aðför sem ríkisvaldið fyrirhugar að Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki, til forsætis-, heilbrigðis- og fjármálaráðuneytis, ráðherrum þessara ráðuneyta og þingmanna NV kjördæmis.

"Verslunarmannafélag Skagafjarðar mótmælir harðlega þeirri aðför að Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki sem að fyrirhuguð er samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarninnar fyrir árið 2011.  Í ár var stofnuninni gert að skera niður um 11% og árið 2011 er niðurskurðurinn boðaður yfir 30%.

Það er algjörlega ólíðandi að ráðast svona á grunnstoðir þjónustunnar í héraðinu og sýnir í raun virðingarleysi heilbrigðisyfirvalda í garð íbúa héraðsins.  Ljóst er að fyrirhugaðar aðgerðir hafa mikil áhrif á búsetuskilyrði í héraðinu, leiða til uppsagna og jafnvel íbúafækkunar. Þá er ótalinn sá öryggisþáttur sem að aðgengi að heilbrigðisþjónustu í heimabyggð er. Það má því segja að  verið sé að leggja á nýjan landsbyggðarskatt með þessum tillögum þar sem að kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu er velt yfir á íbúa héraðsins. 

Verslunarmannafélag Skagafjarðar krefst þess að Ríkisstjórn Íslands endurskoði boðaðann niðurskurð í rekstri Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki.

Verslunarmannafélag Skagafjarðar beinir því til þingmanna kjördæmisins að þeir beiti sér fyrir endurskoðun á fjárheimildum til stofnunarinnar."

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir