Opið fjós í Réttarholti á laugardaginn

Nú á laugardaginn 24. júlí næstkomandi verður fjósið í Réttaholti í Blönduhlíð opið fyrir gestum, gangandi og keyrandi. Um er að ræða nýtt hátæknifjós í algerum sérflokki sem tekið var í notkun 12 .júní 2020 en ekki hefur gefist  tækifæri til að hafa fjósið opið fyrr en nú sökum aðstæðna. 

Fjósið er er með mikinn búnað frá fyrirtækinu GEA sem að Lífland er með umboð fyrir og meðal tækja í fjósinu frá GEA eru; tveir mjaltarobótar, innréttingar, kúabursti, flórsköfuþjarkur með úðakerfi, fóðurkerfi með heilfóðurblandara og gjafabandi. 

Fjósið verður opið frá 15-19 og verða léttar veitingar í boði að hætti Blöndhlíðinga.

Feykir óskar Anniku og Róberti til hamingju með nýja fjósið. 

/SMH


 

Fleiri fréttir