Opið fyrir umsóknir við Hólaskóla

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í grunnnám við Háskólann á Hólum, veturinn 2013 - 2014. Á heimasíðu skólans má skoða kennsluskrá fyrir einstakar námsbrautir en hnappur er á forsíðunni sem vísar beint í  kennsluskrá skólans. Opið verður fyrir umsóknir í grunnnám til miðnættis þann 4. júní nk.

Sækja skal um með rafrænum hætti. Slóðin að eyðublaðinu er aðgengileg af forsíðu Hólavefsins, í gegnum síðu með ýmsum hagnýtum upplýsingum.

Nánari upplýsingar - ef á þarf að halda - eru veittar á þjónustuborði skólans, í síma 455 6300. Einnig má snúa sér til kennslusviðs, í síma 455 6319 eða með tölvupósti tilhjordis@holar.is.

Kennsla á haustönn hefst mánudaginn 26. ágúst.

Fleiri fréttir