Opið hestaíþróttamót UMSS á Sauðárkróki um helgina
Opið hestaíþróttamót UMSS verður á Sauðárkróki um næstu helgi, dagana 5. – 6. maí. Skráning til þátttöku lýkur í dag kl. 21.
Keppt verður í hefðbundnum hesta íþróttagreinum ásamt létt tölt T7 (hægt, snúa við, svo frjáls ferð) og létt fjórgang V5 (beðið um frjáls ferð á tölti, hitt er eins) ef næg þátttaka næst, samkvæmt heimasíðu Stíganda.
Fyrirkomulagið verður eftirfarandi:
- Fjórgangur V1, tölt T1 og T2 og fimmgangur F1- fullorðnir - einn inná í einu.
- Fjórgangur V2, tölt T3, fimmgangur F2 - yngra flokkar - 2-3 inná í einu.
- 100m skeið
- 150m skeið
- 250 m skeið
Sem fyrr segir lýkur skráningu í dag kl. 21 en hana skal senda á netfangið fritz@mi.is. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram:
- nafn og kennitala knapa
- nafn og fæðingarnúmer hests (IS)
- keppnisgrein
- uppá hvaða hönd keppandinn vill ríða (ekki fullorðnir)
Skráningargjald er 4.000 kr. fyrir fyrstu skráningu en 1.000 kr. á næstu skráningar hjá sama knapa. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Stíganda.