Opið hús á „Flötinni“

Opið hús verður hjá Golfklúbbi Sauðárkróks á  “Flötinni” Borgarflöt 2 í dag miðvikudaginn 24. apríl kl.20:00 – 22:00. Samkvæmt tilkynningu frá GSS verður hægt að pútta 18 eða 36 holur eftir því sem mannskapurinn vill. Ekkert mótsgjald og engin verðlaun að þessu sinni. Einnig verður kynning á golfherminum þar sem allir geta prófað.

„Við viljum hvetja alla til að koma, félaga í klúbbnum jafnt sem aðra og eiga saman skemmtilega kvöldstund og hita sig upp fyrir sumarið,“ segja golfarar sem verða með rjúkandi kaffi á könnunni.

Fleiri fréttir