Opinn faðmur og útréttar hendur á styrktartónleikum í Héðinsminni

Haldnir voru tvennir styrktartónleikar í Héðinsminni í Akrahreppi á dögunum til styrktar Stefáni Jökli Jónssyni frá Miðhúsum en hann greindist með krabbamein í maí sl. og er núna í erfiðri lyfjameðferð. Að sögn Péturs Péturssonar frá Álftagerði og einum skipuleggjanda tónleikana var fullt út úr dyrum á báðum tónleikunum og að stuðningurinn sem þarna var sýndur hafi ekki síður verið andlegur, eins og hann var fjárhagslegur.

„Fólk kom þarna með opinn faðm og útréttar hendur til að styðja þessa litlu fjölskyldu sem á í vanda,“ segir Pétur en um kvöldið safnaðist rúm milljón.

Allir sem komu að þessum tónleikum gáfu vinnu sína, en þeir voru m.a. Álftagerðisbræður ásamt Stefáni R. Gíslasyni, Kvenfélag Akrahrepps sem bar fram kaffi og kleinur í hléi og fleiri en allur afraksturinn rann beint til Stefáns Jökuls og fjölskyldu.

Við vöktum bara mál á þessu og gáfum fólki tækifæri til að leggja fjölskyldunni lið, sem þau gerðu svo með glæsibrag,“ segir Pétur og bætir við að óendanlegt þakklæti fer til allra þeirra sem lögðu leið sína í Héðinsminni þetta kvöld en heiðurinn er þeirra, ekki síður en þeirra sem stóðu að þessu.

„Við eigum ekki orð til að lýsa þakklæti okkar,“ segir Guðrún Helga Jónsdóttir systir Stefáns Jökuls en hún segir Stefán hafa verið djúpt snortinn yfir öllum þeim samhug sem honum hefur verið sýndur. „Þetta er ómetanlegt!,“ bætir hún við.

Fyrir þá sem ekki komust en vilja leggja Stefáni Jökli og fjölskyldu lið þá hefur verið stofnaður styrktarreikningur í Arion banka. Reikningsnúmerið er 0310-13-820581 og kennitalan 211078-5299.

Hér eru nokkrar myndir sem Guðrún Helga tók á tónleikunum.

.

Fleiri fréttir