Opinn fundur um Blöndulínu 3
Opinn fundur um hina umdeildu Blöndulínu 3 verður haldinn í félagsheimilinu Árgarði, Lýtingsstaðahreppi, annan í hvítasunnu, þann 28. maí kl. 14. Áhugafólk um framtíð Skagafjarðar hvetur alla til að mæta og kynna sér málið.
Samkvæmt auglýsingu, sem birt er í nýjasta eintaki Sjónhornsins, verður á fundinum m.a. fjallað um skipulagsferli framkvæmdarinnar og áhrif loftlínu á ásýnd og ímynd héraðsins, verði af lagningu hennar.