Opinn fundur velferðarráðherra á Hótel Mælifelli á fimmtudag
feykir.is
Skagafjörður
08.02.2012
kl. 16.17
Guðbjartur Hannesson, velferðarráðherra, og Valgerður Bjarnadóttir, formaður stjórnsýslu- og eftirlitsnenfdar Alþingis, halda opinn fund á Sauðarárkróki á fimmtudagskvöld um atvinnu- og efnahagsmál.
Fundurinn er liður í fundaferð þingflokks Samfylkingarinnar um allt land en alls eru haldnir 18 opnir fundir um allt land þessa vikuna undir yfirskriftinni „Klárum málin“. Atvinnu- og efnahagsmál eru meginefni fundaferðarinnar og byggja þingmenn m.a. á afrakstri flokkstjórnarfundar Samfylkingarinnar 28. janúar s.l. þar sem þar sem ydduð voru helstu forgangsverkefni næstu mánaða í atvinnu- og efnahagsmálum grundvölluðum á stefnu flokksins samþykktri á landsfundinum í október.
Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur til þessa haldið 66 opna fundi á kjörtímabilinu en aldrei heimsótt fleiri staði í einni fundaferð. Þingmennirnir nýta einnig hléið frá þingstörfum í vikunni til þess að heimsækja fyrirtæki og stofnanir um allt land.
Fundurinn er öllum opinn og hefst kl. 20.00 á Hótel Mælifelli fimmtudagskvöldið 9. febrúar.