Opnað fyrir miðasölu þorrablóts Skagfirðingafélagsins
Miðasala á þorrablót Skagfirðingafélagsins í Reykjavík hefur verið opnað en það verður haldið laugardagskvöldið 9. febrúar nk. í Þróttaraheimilinu í Reykjavík. Fjöldi skagfirskra skemmtiatriða verða á dagskrá og má m.a. nefna þá frændur Ellert Jóhanns og Kristján Gísla sem ætla að flytja nokkur lög.
Þá mun Kristján Runólfsson hagyrðingur mæta á svæðið en veislustjóri verður hinn eldhressi og goðumlíki Gústi Kára en Addi í Útvík verður í fararbroddi Hrútspunga og sviða, sem leikur fyrir dansi.
Sjá nánar HÉR