Öruggur ósigur í Grindavík

Tindastólsmenn tóku nýju rútuna til Grindavíkur á föstudaginn þar sem þeir öttu kappi við sterkt lið Grindavíkur í Dominos-deildinni í körfubolta. Ekki varð leikurinn spennandi því Stólarnir reystu sér hurðarás um öxl strax í fyrsta leikhluta og áttu vart möguleika eftir það. Stólarnir náðu aðeins að laga stöðuna í lokin en lokatölur voru 89-74.

Heimamenn komust í 7-0 og 11-2 þegar tvær og hálf mínútua var liðin af leiknum og svona gekk fyrsti leikhluti en staðan að honum loknum var 29-14. Grindvíkingar náðu rúmlega 20 stiga forskoti fljótlega í öðrum leikhluta en eftir það náðu Stólarnir að halda í horfinu. Staðan í hálfleik var 49-32.

Jafnræði var með liðunum í þriðja leikhluta en Drew Gibson minnkaði muninn í 15 stig eftir að hafa lagt boltann í körfuna en þetta voru reyndar einu stig kappans í leiknum en hann kom frekar lítið við sögu. Munurinn á liðunum var þó jafnan um 20 stig fram í fjórða fjórðung en þá náðu strákarnir aðeins að krafsa í forskot heimamanna. Svabbi minnkaði muninn í 13 stig snemma í leikhlutanum en Grindvíkingar hleyptu gestunum ekki of nálægt og munurinn fór ekki niður fyrir 12 stig það sem eftir lifði og sigurinn því öruggur þegar upp var staðið.

George Valentine var stigahæstur Tindastólsmanna með 20 stig og 14 fráköst. Þá gerði Þröstur Leó 15 stig og tók 10 fráköst og Ingvi Rafn gerði 14 stig og var reyndar einn leikmanna Tindastóls til að hitta fyrir utan 3ja stiga línuna en hann gerði 3 3ja stiga körfur í 6 tilraunum. Aðrir leikmenn Tindastóls reyndu alls 19 sinnum við 3ja stiga skot en eitthvað var að klikka.

Næsti leikur Tindastóls er gegn Skallagrími hér heima á fimmtudaginn en Skallagrímsmenn gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Þór Þorlákshöfn á föstudaginn. Það er því alveg nauðsynlegt að stuðningsmenn Stólanna fjölmenni í Síkið og styðji sitt lið.

Stig Tindastóls: Valentine 20, Þröstur Leó 15, Ingvi Rafn 14, Arnar 8, Svabbi 6, Helgi Rafn 5, Hreinsi 4 og Gibson 2.

Fleiri fréttir