Öruggur sigur í Borgunar-bikarnum
Tindastóll lék í gærkvöldi við sameinað lið Dalvíkur/Reynis í Borgunar-bikar KSÍ en leikurinn fór fram í Boganum á Akureyri. Sömu lið mættust fyrir ári í sömu keppni og þá höfðu andstæðingar Stólanna betur en að þessu sinni vann Tindastóll öruggan 5-1 sigur.
Christopher Tsonis kom Stólunum yfir um miðjan fyrri hálfleik og skömmu fyrir hlé bætti Elvar Páll Sigurðsson marki við. Strax í byrjun síðari hálfleik kom Steven Beattie Stólunum í 3-0, Tsonis bætti við marki á 58. mínútu og Atli Arnarson gerði fimmta og síðasta mark Tindastóls á 73. mínútu. Heimamenn löguðu stöðuna þegar skammt var eftir.
Það er því ljóst að lið Tindastóls er komið áfram í Borgunar-bikarnum.