Öruggur sigur KR í Vesturbænum
Tindastólsmenn voru ekki í neinu sérstöku stuði þegar þeir mættu KR-ingum í Vesturbænum í gærkvöldi. Heimamenn náðu fljótlega forskoti en það var þó ekki fyrr en í þriðja leikhluta sem leiðir skildu og þegar upp var staðið höfðu KR-ingar sigrað 84-66. Akkilesarhæll Tindastólsmanna var ansi slök skotnýting, 29% og þá hirtu KR-ingar miklu fleiri fráköst.
Friðrik Hreinsson gerði fyrstu körfu leiksins og Curtis Allen bætti einni við áður en KR komst á blað. Síðan settust KR-ingar í bílstjórasætið, komust í 16-11 og leiddu síðan eftir fyrsta leikhluta, 19-15. Tindastólsmenn héldu í horfinu í öðrum leikhluta, munurinn yfirleitt þetta 2 til 6 stig. Dejan Sencanski kom KR í 35-26 þegar tæpar 3 mínútur voru til hálfleiks en Helgi Margeirs svaraði með 3ja stiga körfu og Igor Tratnik lagaði stöðuna enn frekar skömmu síðar og munurinn fjögur stig, 35-31. KR gerði síðustu 4 stig fyrri hálfleiks og staðan í leikhléi 39-31.
Hittni Tindastólsmanna hafði verið slök í fyrri hálfleik en ekki lagaðist hún í upphafi þriðja leikhluta og fyrri fimm mínútur þriðja leikhluta gerðu KR-ingar 13 stig gegn 4 stigum Stólanna og munurinn orðinn 17 stig. Mestur varð munurinn 21 stig skömmu fyrir lok leikhlutans en Stólarnir náðu aðeins að laga stöðuna, Miller setti niður tvö 3ja stiga skot og staðan 69-53. Fjórði leikhluti hefur oft verið sterkastur hjá Stólunum en það var engin leið til baka í gærkvöldi. Rikki náði að minnka muninn í 15 stig, 77-62, þegar um 5 mínútur voru eftir en nær komust Stólarnir ekki og sigur KR öruggur, 84-66.
Tindastólsmenn höfðu unnið KR tvisvar í vetur en liðið var langt frá sínu besta í gærkvöldi - þó er vanmat ólíklegt. Hittnin innan 3ja stiga línunnar og utan hennar var 29%, sem er reyndar ágætt fyrir utan en dapurt fyrir innan. Hittni KR var 48% og þá tóku KR-ingar 46 fráköst en Stólarnir 28. Þess má þó geta að Stólarnir léku án Svabba.
Snæfell, Tindastóll og Njarðvík eru nú öll með 18 stig í 6.-8. sæti og sem stendur inni í úrslitakeppninni en ÍR og Fjölnir munu örugglega reyna að sækja að þeim í síðustu umferðunum. Næsti leikur Tindastóls er gegn Njarðvík hér heima 22. mars.
Stig Tindastóls: Miller 23, Allen 14, Rikki 8, Þröstur Leó 6, Helgi Rafn 5, Hreinsi 5, Friðrik Þór 3 og Igor Tratnik 2.