Ósátt með ákvörðun Ögmundar
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar mótmælir því harðlega að staða sýslumannsins á Sauðárkróki hafi ekki verið auglýst og í hana ráðið til eins árs á meðan óvissa ríkir um framtíðarskipan embættisins. Fyrir Alþingi liggur lagafrumvarp sem gerir ráð fyrir að aðskilja sýslumanns- og löggæsluhluta sýslumannsembætta landsins.
Á fundi byggðarráðs í síðustu viku skrifuðu oddvitar allra flokka undir bókun þar sem fram kemur að byggðarráð telji óeðlilegt að á meðan lagafrumvarpið hafi ekki hlotið fullnaðarafgreiðslu á Alþingi, sé staða sýslumannsins á Sauðárkróki lögð niður.
Byggðarráð telur eðlilegt að ákvörðun um framtíðarskipun sýslumannsembætta sé tekin á Alþingi en ekki innan veggja ráðuneytis.