Óskarinn 2014- Litleysi og litlar áhættur!

Nú er Óskarsverðlaunahátíðin þetta árið um garð gengin og hefur Fröken Fabjúlöss samviskusamlega legið yfir heimildum til að mynda sér skoðanir um hvað stóð uppúr, hvað hefði mátt betur fara og hverju hefði alfarið mátt sleppa....

Við fyrstu yfirferð kemur eitt orð strax í hugann: "Vonbrigði!!" Oft, já og jafnvel eiginlega bara yfirleitt hefur glamúr, glys og glimmer verið meira áberandi en þetta árið, og fannst Frökeninni það helst standa uppúr hversu litlausir kjólarnir voru, en ansi margar skvísurnar fengu memóið um húðlitu kjólana og fylgdu því eins og um reglur Maó Formanns væri að ræða! Nokkrar voru þær þó sem virtu memóið að vettugi og völdu liti, en héldu sig þó flestar innan þægindarammans, engar óþarfa sénstökur árið 2014 takk! Meira að segja furðuverkið og fríksjóvið Lady Gaga mætti mjög látlaust máluð í "venjulegum" kjól- og fékk greinilega afrit af húðlitaða post it miðanum!

Jennifer Lawrence (hin ávalt valta á fæti), Sandra Bullock og Penelope Cruz voru einstaklega glamúröss og stórglæsilegar, en sú sem átti kvöldið að mati Fröken Fabjúlöss er óneitanlega fegurðardísin hún Kate Hudson þar sem ekki eitt einasta feilspor var stigið útlitslega séð og var hún guðdómlega falleg!

Fröken Fabjúlöss hefur sett saman lítið myndagallerý með yfirferð yfir kjóla kvöldsins og samviskusamlega skrifað komment við myndirnar, endilega rúllið í gegnum þetta:

Fleiri fréttir