Ótrúleg stemning á bikarleiknum

Stemningin fyrir og á bikarleik Tindastóls og Keflavíkur í Laugardalshöllinni 18. febrúar 2012 var mikil enda í fyrsta skiptið sem Stólarnir hafa komist í úrslitaleik bikarkeppni KKÍ. Á YouTube er vídeó þar sem stemningin var fönguð og má segja að engum hafi leiðst þótt ekki hafi tekist að knýja fram sigur. En eins og einn Skagfirðingurinn orðaði það eftir leikinn: „Við þurfum enga helv... dollu til að halda veislu í Skagafirði“.

http://www.youtube.com/watch?v=zq_MPLTUtj4&feature=youtu.be

Fleiri fréttir