Óvaranlegt varatattú!

Nýjasta trendið sem fangaði forvitni Fröken Fabjúlöss heitir Violent Lips og er ný gerð af varalit. Þetta er ekki þessi hefðbundni stift eða túbuvaralitur eða gloss, heldur minnir þetta hálfpartinn á "tattúin" sem koma í tyggjóunum fyrir litlu krakkana, sem er þrykkt á húðina.

Fröken Fabjúlöss vill taka það fram að enginn hérna í höfuðstöðvum Fab heimsveldisins hefur höndum leikið þessa dýrð, og því þorum við ekki að setja okkar gæðastimpil á vöruna. Orðið á götunni er að þetta sé einkar patent, þessu sé einfaldlega stimplað á varirnar með hjálp blautrar bómullarskífu og svo sé viðkomandi með draumavarirnar áfastar næstu 4 til 8 klukkutímana!

Frk. Fab sér nú reyndar strax ókosti sem gætu fylgt í kjölfarið... Eftir ásetningu skartar viðkomandi nú vörum sem gætu hugsanlega ekki fallið í kramið (reyndar á að vera auðvelt að fjarlægja þetta með olíu)- oft lítur varalitur eða gloss út eins og burðarstólpi tískunnar þangað til hann er kominn á varir, þá myndi hann sóma vel á konu sem kostar- og svo ef viðkomandi er ekki ánægð með útkomuna er búið að spandera ákveðinni upphæð í eitthvað sem fer algjörlega til spillis þar sem Violent Lips er einnota.

Hægt er að kaupa þessa ákveðnu gerð af snilld á femin.is á litlar 598 krónur, og er einungis eitt sett af vörum innifalið í verðinu. Einnig er hægt að fá leiðbeiningar um ásetningu, og kaupa beint af heimasíðu Violent Lips: http://www.violentlips.com/

Fröken Fabjúlöss finnst hugmyndin góð.... En hvernig er hún í framkvæmd?

Fleiri fréttir