Pælt í primer!

Þegar Fröken Fabjúlöss fór í förðunarnám fyrir um það bil 10 árum var ekki mikil áhersla lögð á það að nota primer í förðun. Í dag er primer hluti af staðalbúnaði förðunarfræðingsins og eru þær fáar förðunardömurnar sem ekki nota þetta mikilvæga tól!

Fröken Fabjúlöss hefur oft fengið spurninguna "Hvað er primer?" og höfum við hérna í förðunarhorni Fabjúlössmans tekið það upp á okkar förðunarelskandi arma að útlista það í grófum dráttum.

Aðalhlutverk primers í stuttu máli er að láta förðunina endast lengur og eru tvennskonar primerar notaðir í förðun; andlitsprimer og augnprimer.

Andlitsprimerinn gerir ekkert fyrir augun, og á móti er augnprimerinn í raun alltof dýr til að vera að smyrja á allt andlitið og myndi væntanlega láta þynnsta meik líta út eins og einhver hafi lagt terrakottaflísar á andlitið á sér.

Andlitsprimerinn er borinn á andlitið eftir að rakakrem hefur verið borið á, og áður en meik og consealer fá að uppfylla sitt hlutverk á andliti dívunnar. Hlutverk andlitsprimers er að lengja líftíma meiksins, fylla upp í litlu svitaholurnar í húðinni, jafna út hrukkur og beisikklí að gera húðina sléttari og fallegri. Hægt er að kaupa andlitsprimer einann og sér, en einnig er hægt að kaupa krem sem eru í senn primer og rakagefandi og er það náttúrulega hin mesta snilld!

Augnprimer er borinn á augnlokið eftir að meik og púður eru komin á sinn stað. Það þarf að passa sig sérstaklega vel með primerinn, að setja þunnt lag því annars myndar hann olíukenndar línur. Primerinn þjónar því mikilvæga hlutverki að halda augnskugganum fínum og ferskum allann daginn án þess að hann hlaupi upp í olíukenndar línur/klessur á augnlokinu eða hreinlega hverfa eins og stundum vill gerast með augnskugga sem eru með lélega pigment. Einnig gefur augnprimerinn pigmentinu í augnskugganum extra bússt, þannig að í flestum tilfellum verður liturinn á augnlokinu sá sami og í augnskuggaboxinu, en án primers  er augnskuggi oft bara dauf eftirlíking af því sem er í boxinu þegar hann er kominn á augnlokin!

Dæmi um góða andlitsprimera:
Photo-loving primer frá NYX
La Base Pro frá Lancome
Primed and Poreless frá Too Faced

Dæmi um góða augnprimera:
Eyeprimer frá Make Up Store
Eyeshadow base frá NYX
Primer frá No Name

Fröken Fabjúlöss er dyggur aðdáandi primera, og þá sérstaklega í litríkar farðanir eins og eru svo stórkostlega vinsælar þessi misserin!

Fleiri fréttir