Paperself pjatterí!

Eftir að stórmyndin The Hunger Games kom út hefur nýtt æði heldur betur tryllt lýðinn. Í myndinni skarta leikkonurnar Jennifer Lawrance og Elizabeth Banks heldur betur óvenjulegum og frumlegum augnhárum sem koma frá Breska fyrirtækinu Paperself.

Fröken Fabjúlöss getur ekki annað en tekið andköf yfir stórkostlegheitunum og iðar í skinninu að komast yfir allavega eitt par af svona augnhárum ef ekki bara rúmlega það! Innblásturinn á bak við hönnun augnháranna sækir Paperself í Kínversku pappírsskurðarlistina í bland við nútímalist, en við hönnun augnháranna er stuðst við þau sex tákn sem eru einna rótgrónust í kínverskri menningu:
Hestar- Táknrænir fyrir velgengni
Bóndarós- Táknræn fyrir gæfu
Ferskjublómið- Táknrænt fyrir ást og rómantík
Páfugl- Táknrænn fyrir heillavænlega og gæfufyllta daga
Fiðrildi-  Táknrænt fyrir frelsi, fegurð og næmni
Trúður- Færir hamingju

Þessi hönnun færir okkur hérna í höfuðstöðvum Fab heimsveldisins svo sannarlega mikla hamingju þar sem möguleikarnir sem þessi augnhár bjóða upp á eru nákvæmlega óteljandi! Hægt er að nota þau sem augnhár en svo er hægt að klippa þetta á alla kanta og nota í hin og þessi lúkk þar sem hugmyndaflugið er í öndvegi!

Hægt er að fá tvennskonar stærðir; annarsvegar augnhár sem ná yfir allt augað, og svo augnhárabúta sem settir eru í ytra horn augans. Paperself er með stórskemmtilega vefverslun á síðunni sinni þar sem hægt er að velja úr öllum gerðum af þessum stórkostlega patent og skemmtilegu augnhárum!

Fröken Fabjúlöss er orðin ástfangin af Paperself og mun líklega ekki sofa af löngun næstu sólarhringana!

Heimasíða Paperself: http://www.paperself.com/

Fleiri fréttir