Páskafrí

Nemendur og skólastarfsfólk hafa líklega talið niður þessa dagana en í dag 15. apríl rennur upp langþráð páskafrí enda tíminn á milli jóla og páska óvenju langur þetta árið. Flestir koma aftur til skóla sinna þriðjudaginn 26. apríl.

Leikskólabörn á Sauðárkróki fá líka sitt páskafrí en leikskólinn Ársalir verður lokaður vegna starfsdags eftir hádegi þriðjudaginn 19. apríl og allan daginn þann 20.

Við hin sem þurfum að vinna fram á miðvikudag segjum bara njótið.

Fleiri fréttir