Pétur Rúnar á Norðurlandamótið
Pétur Rúnar Birgisson, leikmaður 10. flokks Tindastóls í körfubolta, er senn á förum til Svíþjóðar þar sem hann mun leika fyrir hönd Íslands á Norðurlandamótinu í Solna.
Pétur Rúnar er fyrsti landsliðmaður Tindastóls í yngri landsliðunum í langan tíma og hefur jafnt og þétt verið að skipa sér í hóp þeirra bestu í sínum árgangi, en hann er fæddur árið 1996, segir á Tindastóll.is en þar er einnig greint frá þeim fórnum sem hann þarf að færa en Pétur hélt suður yfir heiðar á þriðjudag þar sem við taka stífar æfingar fram að brottför út í næstu viku. Fyrir vikið missir Pétur af skólaferðalagi 10. bekkinga í Árskóla til Danmerkur.