Pétur Rúnar kallaður í U-18 ára landsliðið
Pétur Rúnar Birgisson leikmaður Tindastóls í körfuknattleik hefur verið kallaður í U-18 landsliðið vegna forfalla. Tindastóll á nú fjóra leikmenn í yngri landsliðum Íslands, en U-16 og U-18 ára landsliðin halda senn til Svíþjóðar til leiks á Norðurlandamótinu, en U-15 ára liðin taka þátt í Copenhagen Invitational mótinu í júní.
Samkvæmt heimasíðu Tindastóls vakti það athygli þegar Pétur var ekki valinn í 20 manna hóp U-18 ára landsliðsins, en frammistaða hans með meistaraflokki, 11. drengja- og unglingaflokki seinni hluta tímabilsins sýndi og sannaði hvað í honum býr. Við forföll í tólf manna hópnum sem Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari U-18 ára landsliðs karla, var búinn að velja ákvað hann að velja Pétur inn.