Pétur Rúnar með U-15 ára landsliðinu

Tindstælingurinn Pétur Rúnar Birgisson lék með íslenskak landsliðinu í körfubolta í Copenhagen Invitational mótinu ásamt félögum sínum í U-15 ára landsliðinu í síðustu viku.

Pétur er einn 12 leikmanna í U-15 ára landsliðinu og er fyrsti landsliðsmaður Tindastóls um nokkurra ára skeið en liðið var skipað eftirtöldum leikmönnum;

  • 4 · Högni Fjalarsson · KR
  • 5 · Hilmir Kristjánsson · Grindavík
  • 6 · Jón Axel Guðmundsson · Grindavík
  • 7 · Gunnar Ingi Harðarson · Ármann
  • 8 · Daði Lár Jónsson · Stjarnan
  • 9 · Pétur Rúnar Birgisson · Tindastóll
  • 10 · Vilhjálmur Kári Jensson · KR
  • 11 · Hlynur Logi Víkingsson · Ármann
  • 12 · Hinrik Guðbjartsson · Grindavík
  • 13 · Atli Þórsson · Fjölnir
  • 14 · Kristján Leifur Sverrisson · Haukar
  • 15 · Helgi Rúnar Björnsson · Stjarnan
  • Þjálfari: Snorri Örn Arnaldsson

Strákarnir enduðu á tveimur öruggum sigrum á Danmörku, 78-51 og á Værlöse 73-60, en sigurinn á Værlöse tryggði 5. sætið á mótinu.

Fleiri fréttir