Pétur Rúnar meiddist í tapleik

Tindstælingurinn Pétur Rúnar Birgisson, landsliðsmaður U-16 í körfubolta varð fyrir því óhappi í dag að meiðast á læri í tapleik gegn Svíum á Norðurlandamótinu í Solna. Meiðslin eru þess eðlis að hann verður ekki meira með á mótinu samkvæmt heimasíðu Tindastóls.

Pétur fékk högg á lærið í leiknum og gat spilað áfram meðan hann var heitur, en þegar hann kólnaði niður bólgnaði lærið það mikið að hann er óvinnufær.

Þrátt fyrir þetta varð Pétur stigahæstur í liðinu með 12 stig, auk þess sem hann spilaði mest allra íslensku strákanna, tæpar 32 mínútur. Því miður fyrir okkar ágæta landslið tapaðist leikurinn 52-59.

Á morgun spila strákarnir síðasta leik sinn gegn Dönum en mikil blóðtaka er fyrir liðið að missa Pétur sem hefur verið einn besti leikmaður liðsins.

Hægt er að sjá viðtal við Pétur á Karfan.is

Fleiri fréttir