Pílagrímsgangan í máli og myndum
Bóndinn Arnór og hlaupastrákurinn Allan ætla að segja frá gönguferð sinni eftir Jakobsvegi á Spáni sem þeir fóru í sl. vor í máli og myndum í Miðgarði sunnudaginn 20. janúar kl. 20:30.
Jakobsvegur eða Vegur heilags Jakobs er ein þekktasta pílagrímaleið í Evrópu, endar í dómkirkjunni í Santiago de Compostela í héraðinu Galisíu á Spáni.
Feykir greindi frá því þegar pílagrímsferð þeirra félaga lauk þann 14 apríl 2012 en ferð þeirra félaga hófst þann 8. mars. Að göngunni lokinni náðu þeir þeim áfanga að fá aflátsbréf í hendurnar sem staðfesti að þeir væru syndlausir til 18. júlí 2019.
Allir eru velkomnir í Miðgarð á meðan húsrúm leyfir, segir í nýjasta eintaki Sjónhornsins.