Pretty Red Dress plata vikunnar
Skagfirska hljómsveitin Contalgen Funeral á plötu vikunnar á Rás 2 og ber hún nafnið Pretty Red Dress og kom út fyrr í sumar. Platan var tekin upp í Stúdíó Benmen á Sauðárkróki sem er í eigu Sigfúsar Arnars Benediktssonar, trommuleikara sveitarinnar.
Á Rúv.is segir að Contalgen Funeral hafi spilað víðsvegar um landið í sumar, t.d. á tónlistarhátíðunum Bræðslunni og Gærunni en sveitin er einnig bókuð á Iceland Airwaves hátíðina í byrjun nóvember. Lagið Not Dead Yet hefur verið nokkuð vinsælt á Rás 2 undanfarnar vikur.
Pretty Red Dress inniheldur 12 lög og heita:
- 1. Crack Cocaine
- 2. Pretty Red Dress
- 3. Charlie
- 4. Walking to the Bar
- 5. Not Dead Yet
- 6. Broketown
- 7. I Got the Blues
- 8. Living the Dream
- 9. Bottom of the Bottle
- 10. Drinking With the Devil
- 11. Whiskey for the Blind Man
- 12. Homeless Blues
HÉR má nálgast lagið Not dead Yet á YouTube