Propsið skeit á fremsta bekk
Hljómsveitin Brother Grass spilar á Tónlistarhátíðinni Gærunni á Sauðárkróki sem fer fram um næstu helgi og segjast hlakka afskaplega mikið til. Feykir sendi Brother Grass nokkrar spurningar til að kynnast hljómsveitinni nánar.
Hvenær var hljómsveitin stofnuð og hvað heita hljómsveitarmeðlimir?
Hún var stofnuð sumarið 2010 og heitum við Hildur Halldórsdóttir, Sandra Dögg Þorsteinsdóttir, Soffía Björg Óðinsdóttir, Ösp Eldjárn og Örn Eldjárn
Hvernig mynduð þið lýsa tónlist ykkar?
Alþýðutónlist er kannski besta lýsingin. Svona bræðingur af folk, bluegrass, blues og old time mountain hillbilly music.
Hefur einhvern tímann eitthvað skondið átt sér stað á tónleikum hjá ykkur?
Einu sinni vorum við að spila á tónleikum í Vopnafirði þar sem okkur fannst sniðugt að vera með svona lifandi props, sem samanstóð af geit, kálfi, hvolpum og hænu. Það var sniðugt þangað til kálfurinn skeit á fremsta bekk.
Hvernig leggst í ykkur að spila á Gærunni 2012?
Við hlökkum afskaplega mikið til, enda vorum við í fyrra!
Hvað er á döfinni?
Við erum að vinna í frumsömdu efni fyrir næstu plötu!
Eitthvað að lokum?
Við elskum gærur! Til hamingju með þessa frábæru tónlistarhátíð!
http://www.youtube.com/watch?v=0p_1RLDWBpQ&feature=related