Pub Quiz í Tjarnarbæ
Hestamannafélagið Léttfeti á Sauðárkróki mun standa fyrir spurningakeppni í Tjarnarbæ á morgun föstudagskvöldið 30. nóvember kl. 21:00. Að sögn Steinunnar Önnu Halldórsdóttur annars spurningahöfunda og spyrils verður þema kvöldsins hestatengt og um að gera fyrir fólk að draga sig saman í lið og skrá sig til leiks en þrír til fjórir er heillatala í liðsskipaninni. Skráning liða og upplýsingar um keppnina eru hjá Steinunni í síma 8650945.
Samkvæmt tilkynningu frá Léttfeta er þetta liður í fjáröflun félagsins og kostar þúsundkall inn. Á boðstólnum verður kaffi og eitthvað pínu snakk með en ölið þurfa menn að bera sjálfir. Allir eru hvattir til að mæta og hafa gaman.