Ráðgert að steypireyður verði hafður til sýningar í Perlunni

Beinagrind af 25 m löngum steypireyði sem rak á land á við eyðibýlið Ásbúðir á Skaga sumarið 2010 kemur sennilega til með að vera til sýningar í Perlunni sem hluti af náttúruminjasýningu, vilji hönnuðir sýningarinnar fá grindina. Mbl.is greinir frá þessu.

Jón Gunnar Ottósson, forstjóri Náttúrufræðistofnunar Íslands, sagði í samtali við Mbl.is að beinagrindin væri nú geymd á Keflavíkurflugvelli þar sem húsnæði var leigt til þriggja ára. Hann sagði það vera gríðarlega mikið verk að setja beinagrindina saman og að það yrði ekki gert nema til langs tíma. Hægt væri að koma flestum beinunum inn í Perluna nema hauskúpunni. Gera verður sérstakar ráðstafanir til að koma henni þar inn.

Fleiri hafa lýst áhuga á að fá beinagrindina þar á meðal Hvalasafnið á Húsavík, en þar þyrfti að byggja yfir beinagrindina.

Fleiri fréttir