Radoslav Kolev til Tindastóls

Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við búlgarska leikmanninn Radoslav Kolev, sem er tveggja metra hár framherji. Eins og margir hafa séð hefur Tindastólsliðinu vantað fleiri leikmenn til að spila undir körfunni og var það mat stjórnar og þjálfara að stoppa þyrfti upp í það gat sem þar var.

Radoslav Kolev er leikmaðurinn sem á að rótera með Helga Rafni og Kiki undir körfunni. Hann er 200 cm á hæð og 102 kíló. Hann er sagður mikill baráttujaxl og góður frákastari.

Rado kom til landsins á laugardag og mætir á sína fyrstu æfingu með Tindastólsliðinu á mánudag.

Josh Rivers kom til landsins á sunnudag og mun einnig mæta á sína fyrstu æfingu á mánudag.

Þá er ljóst að leikmannahópur Tindastóls er fullskipaður, ekki seinna vænna, þar sem fyrsti leikurinn í Iceland-Express deildinni verður á Ísafirði á fimmtudaginn. Og nú er bara að vona að strákunum takist að koma nýju mönnum almennilega inn í hlutina á þeim þremur æfingum sem verða fram að fyrsta leik.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir