Rainy day in the park

Tónlistarmaðurinn Andri Már Sigurðsson eða ,,Joe Dubius" eins og hann kýs að kalla sig var að gefa út nýja plötu nú á dögunum og ber hún nafnið Rainy day in the park. Platan er öll tekin upp í Stúdíó Benmen hjá honum Fúsa Ben.

Hér ber að líta glænýtt myndband sem þeir Stefán Friðrik Friðriksson og Andri gerðu við lagið One Horse Town. Hægt verður að nálgast plötuna í Skagfirðingabúð og einnig er hægt að hafa beint samband við Andra og fá plötuna þar. Platan verður einnig til sölu í 12 tónum og Smekkleysu eftir helgi.

http://www.youtube.com/watch?v=MiB6QWOmz48&feature=youtu.be

Fleiri fréttir