Rallýcross á Króknum á síðustu öld – fyrri hluti
Bílaklúbbur Skagafjarðar hefur staðið fyrir ýmsum aksturskeppnum í gegnum tíðina og er Skagafjarðarrallið hvað þekktast enda ætíð tekist vel. Á upphafsárum klúbbsins var hins vegar mikil gróska í rallýcrossi en þær keppnir fóru fram þar sem motocross braut Vélhjólaklúbbs Skagafjarðar er nú. Á YouTube er að finna myndbrot frá 1992 sem sýnir hvað fram fór á rallýcrossbrautinni. Það er Katrín María Andrésdóttir sem lýsir keppni.
http://www.youtube.com/watch?v=G3_x01d09uE&feature=player_embedded