Rauð viðvörun!

Í ljósi atburða síðustu viku og að samfélagið í Skagafirði er að komast í eðlilegt horf, sem og á landinu öllu, þykir rétt að endurmeta stöðuna. Í aðdraganda þessara eftirminnilegu viku var spáð rauðri viðvörun á Norðurlandi vestra og því alveg ljóst í hvað stefndi – Óveður!

Ótrúleg fórnfýsi
Margir, en þó ekki allir, sýndu fyrirhyggju og undirbjuggu sig fyrir óveðrið sem stefndi á okkur. Björgunarsveitir voru með allt sitt á hreinu og fluttu t.a.m. snjóbíla á svæðið. Gerðu tól og tæki klár og biðu síðan eftir því að óveðrið skylli á en m.v. ástandið er ljóst að fleiri hefðu mátt gera hið sama og björgunarsveitin. Þeim aðilum sem börðust við að halda innviðum samfélagsins gangandi verður seint fullþakkað fyrir ómælda elju og baráttu við náttúruöflin og er það deginum ljósara að við vorum heppin að ekki varð mannskaði í Skagafirði. Ég vil því þakka öllum þeim aðilum sem lögðu sitt af mörkum og sýndu fyrirhyggju - TAKK FYRIR YKKAR FRAMLAG - björgunarsveitamenn og -konur, almannavarnir, lögreglan, starfsmenn Rarik og Skagafjarðaveitna og aðrir starfsmenn sveitarfélagsins, þjónustuaðilar, nágrannar og allir Skagfirðingar - ykkar fórnfýsi er ómetanleg.

Öryggi innviða
Innviðir eins og raforka, fjarskipti og hitaveita eru grunnstoðir samfélagsins og mega alls ekki detta út þegar óveður af þessu tagi gengur yfir og því þarf að skoða vel og meta hvað má betur fara. Einn af þessum innviðum í Sveitarfélaginu Skagafirði er heita vatnið okkar, sem sveitarfélagið hefur byggt upp, og er framreiknaður kostnaður við slíka uppbyggingu um 3 milljarðar. Þykir því rétt að benda á að  hitaveituvæðing í Sveitarfélaginu Skagafirði hefur sparað ríkinu u.þ.b. 100 milljónir á ári vegna niðurgreiðslu á raforku til húshitunnar. Ljóst er að uppbyggingin á hitaveitunni hefur tekist vel enda bilaði ekkert í óveðrinu og fór aldrei hiti af veitukerfinu sem verður að teljast þrekvirki. Því má ekkert gefa eftir í uppbyggingu á hitaveitu í Skagafirði á þeim svæðum sem eftir eru og verður að skoða „köld“ svæði sérstaklega og hvernig er hægt að tryggja þeirra öryggi.

Öryggisleysi í raforku og fjarskiptamálum
Fjarskipti voru inni og úti þegar óveðrið gekk yfir og þá aðallega vegna rafmagnsleysis og því verður að skoða raforkuöryggi í Skagafirði sérstaklega. Það er búin að vera margra ára barátta að koma Sauðárkrókslínu 2 á verkefnaborðið en nú er það verkefni loksins komið í gang og á að klárast árið 2020, með jarðstreng milli nýrra yfirbyggðra spennivirkja á Sauðárkróki og Varmahlíð sem munu styrkja raforkuöryggið til muna. Rarik er á mikill ferð að leggja af loftlínur og setja jarðstrengi í staðinn en eftir óveður af þessu tagi ætti slíkt að ganga hraðar. Þó má segja annað um byggðalínuna, sem liggur í gegnum Skagafjörð, og bilaði í þessu óveðri þó að ekki virðist mega fjalla mikið um það. Blöndulína 2 bilaði 10. desember sl. kl. 14:41 og kom aftur inn 11. desember kl. 8:38. Byggðalínan var sem sagt úti í 17 klukkutíma og 37 mínútur. Eftir stóð Rangárvallalína sem liggur frá Varmahlíð í Eyjafjörð en sú lína er veikasti hlekkur í byggðalínu Íslands og ekki er hægt að hugsa hvernig ástandið hefði orðið ef Rangárvallalínan hefði einnig dottið út - nógu var ástandið slæmt.

Þjóðaröryggi
Ljóst er að ástandið var afar slæmt á Íslandi þá daga sem óveðrið gekk yfir og eftirköstin alvarleg enda var þjóðaröryggisráð Íslands kallað saman - það slæmt var ástandið. Þann 13. desember sl. var fundur með aðilum úr þjóðaröryggisráðinu á Sauðárkróki en formaður ráðsins er forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir. Á fundinum var farið yfir atburði liðinna daga og horft til framtíðar. Ljóst er að með komu sinni líta stjórnvöld alvarlegum augum á ástandið sem skapaðist í óveðrinu. Þó stendur eftir sú spurning; hvort Sveitafélagið Skagafjörður eigi að berjast eitt fyrir því að tryggja þjóðarhagsmuni með því að vera endalaust kært vegna lagnaleiðar byggðalínunnar í aðalskipulagi sveitarfélagsins eða fær sveitarfélagið stuðning frá stjórnvöldum við að tryggja þessa hagsmuni? Burtséð frá því hvar lagnaleiðin verður.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar segir: ,,Forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar verður að nýta með sem hagkvæmustum hætti þá orku sem þegar hefur verið virkjuð. Í þeim tilgangi þarf að treysta betur flutnings- og dreifikerfi raforku í landinu, tengja betur lykilsvæði og tryggja afhendingaröryggi raforku um land allt. Skoðað verði að hve miklu leyti má nýta jarðstrengi í þessar tengingar með hagkvæmum hætti. Ekki verður ráðist í línulagnir yfir hálendið.“    

Þann 16. desember sl. kom út skýrsla eftir dr. Hjört Jóhannsson sem Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Umhverfis- og auðlindaráðuneytið létu gera og var birt í Samráðsgátt stjórnvalda um mat á möguleikum þess að nýta jarðstrengi við uppbyggingu flutningskerfis raforku. Ég hvet alla sem vilja mynda sér skoðun á samanburði á loftlínum og jarðstrengjum í byggðalínunni að kynna sér niðurstöðu þessara skýrslu.

Leiðinlegt er að segja frá því að ljósin voru varla kviknuð þegar þingfest var mál fyrir héraðsdómi gegn Sveitarfélaginu Skagafirði vegna lagnaleiðar byggðalínunnar í gegnum fjörðinn - en nú reynir á. Það er verk sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagafjarðar að fylgja þessu verkefni eftir og tryggja innviði samfélagsins heima í héraði. Eitt er þó víst að veður af þessu tagi mun koma aftur en spurningin er hvort við ætlum að læra af þessu, eða hunsa þetta enn og aftur, og senda viðbragðsaðila út í óvissuna? Ég trúi ekki öðru en að hér hljóti almannahagsmunir að vega þyngra og vera númer eitt.

Gísli Sigurðsson, sveitarstjórnarfulltrúi og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Skagafirði 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir