Rektoraskipti við Háskólann á Hólum

Í gær urðu rektoraskipti við Háskólann á Hólum í Hjaltadal er dr. Erla Björk Örnólfsdóttir tók við af dr. Skúla Skúlasyni sem gegnt hefur stöðunni frá því að skólinn varð háskólastofnun árið 2003.  

Það var sannkölluð hátíðarstund á Hólum í gær er Erla Björt var boðin velkomin til starfa af fjölda fólks sem var saman kominn í skólabyggingunni. Þar afhenti Skúli Skúlason fráfarandi rektor Erli brennijárn sem er einskonar tákn um embættið og bauð hana velkomna til starfa og óskaði henni velfarnaðar í því.

Skúla voru þökkuð þau miklu og metnaðarfullu störf sem hann hefur lagt af hendi fyrir skólann sem og Hólastað allan en í tíð hans hefur mikil uppbygging átt sér stað á svæðinu bæði hvað varðar menntun og vísindastörf sem og húsbyggingar.

Skúli mun hverfa aftur að starfi sínu sem prófessor í fiskeldis- og fiskalíffræðideild.

Fleiri fréttir